Föstudaginn 22. september fer fram úrslitakeppni nema í matreiðslu og framreiðslu um titilinn framreiðslu og matreiðslunemi ársins 2017. Keppnin fer fram í Hörpu og hefst kl. 12. Sigahæstu nemarnir í keppninni koma til með að taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Kaupmannahöfn dagana 20 – 21 apríl 2018.

 

Í matreiðslu keppa:

 

Baldvin Freyr Sigurðsson – Icelandair Marína, meistari Jónas Már Ragnarsson

Elmar Ingi Sigurðsson – Radisson SAS Blu, meistari Sigurður Helgason

Hinrik Lárusson – Radisson SAS Blu, meistari Sigurður Helgason

Michael Pétursson – VOX, meistari Jónas Már Ragnarsson

 

Verkefni matreiðslunema er að matreiða forrétt, aðalrétt og eftirrétt fyrir níu einstaklinga. Í forrétt er íslenskt haustgrænmeti. Rétturinn má ekki innihalda mjólkurafurðir eða hnetur framreitt er af fati.  Í aðalrétt er kjúklingur og risottó ásamt heitri sósu. Aðalréttur er framreiddur af fati og í eftirrétt eru jarðarber, marens og heit sósa. Eftirrétturinn er framreiddur á diskum.

 

Dómarar í keppninni eru Bjarki Hilmarsson, Guðmundur Guðmundsson, Bjarni Siguróli og Helmut Müller.

 

Í framreiðslu keppa.

 

Axel Árni Herbertsson – Bláa lónið, meistari Jakob Már Harðarson

Rakel Siva – Radisson Blu Hótel Saga, meistari Lovísa Grétarsdóttir

Sandra Óskarsdóttir – Bláa lónið, meistari Andrea Mekkín Júlíusdóttir

Sigurður Borgar – Radisson Blu Hótel Saga, meistari Lovísa Grétarsdóttir.

Verkefni framreiðslunemanna er eftirfarandi:  Skriflegt próf um fagtengd málefni; blöndun áfengra- og óáfengra drykkja; eldsteikingu; fyrirskurð á heilum kjúkling; sérvettubrot; kvöldverðaruppdekkning fyrir fjóra rétti ásamt blómaskreytingu og framreiðsla á fjórum réttum ásamt vínum. 

 

Dómarar eru Trausti Víglundsson, Ólafur Ólafsson, Baldur Sæmundsson, Jón Bjarni og Sigmar Beck Rand.