Ágætu MATVÍS félagar

Innan félagsins starfar uppstillinganefnd sem hefur það hlutverk að stilla upp mönnum í stjórn og aðrar trúnaðarstöður félagsins. Hér eru starfsreglur nefndarinnar.

Stjórn og trúnaðarráð MATVÍS skal kjósa þrjá menn í uppstillingarnefndnefnd til að gera tillögur um stjórn og önnur trúnaðarstörf félagsins. Í störfum sínum skal nefndin tryggja það að allar deildir innan félagsins eigi fulltrúa í stjórn og ráðum og kalla eftir óskum þeirra er gengt hafa trúnaðarstöðum um áframhaldandi störf fyrir félagið.  Við endurnýjun í trúnaðarstöður skal nefndin vinna að því að leita eftir aðilum á stærri og fjölmennari vinnustöðum þar sem því verður viðkomið.  Nefndin starfar í umboði stjórnar og trúnaðarráðs.  Nefndin skal hafa lokið störfum fyrir lok janúarmánaðar og skulu tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins frá byrjun febrúarmánaðar og fram til aðalfundar.“

Nefndin auglýsir eftir aðilum frá stærri og fjölmennari vinnustöðum til þess að gefa kost á sér til stjórnar og trúnaðrastarfa fyrir fyrir félagið. Þeir sem hafa áhuga og eru tilbúnir til félagsstarfa hafa gott aðgengi að námskeiðum sem í boði eru fyrir þá sem gegna trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög sér að kostnaðarlausu.

Áhugasamir geta sent upplýsingar um sig á netfangið sigmundursigurjonsson@gmail.com fyrir 30.janúar

 

Uppstillinganefnd.