MATVÍS og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa fest kaup á tveimur orlofshúsum á Flórída, nánar tiltekið í Rosemont Woods í Davenport.  Opnað fyrir pantanir 1. desember.

Um er að ræða lokað svæði (e. gated community) þar sem hliðvarsla er allan sólarhringinn. Orlofshúsin eru á tveimur hæðum og eru 5 herbergi í hvoru húsi með svefnplássi fyrir 10 manns. 4 salerni eru í húsunum. Sundlaugar eru við húsin auk þess sem leiksvæði er í bílskúrum húsanna.

 

18 holu golfvöllur er innan svæðisins en völlurinn er hannaður af Micheal Dasher. Í klúbbhúsi svæðisins er að finna veitingastað, bar, sundlaugar með rennibrautum, tvo tennisvelli og ýmislegt fleira. Því er ljóst að félagsmenn ættu að geta fundið eitthvað við hæfi innan svæðisins. 

 

Félagsmenn geta leigt orlofshús í dagleigu og er ætlast til að leigutímabil sé ekki lengra en 2 vikur en þó er veittur sveigjanleiki á að leigja allt að þrjár vikur að hámarki. Fast gjald er fyrir hverja nótt sem leigð er en einnig þarf að greiða þrifagjald sem rukkað er einu sinni fyrir hverja leigu óháð tímalengd.

 

Fyrsta mánuðinn verða bókunartímabil aðskilin fyrir hvort félag um sig en að þeim tíma verður opnað fyrir bókanir á bæði húsin óháð félögum.

Húsið er tilbúið fyrir félagsmann kl. 16:00 og er brottför kl. 10:00 að morgni brottfarardags. Óski félagsmenn eftir því að fá að tæma húsið seinna þá verður viðkomandi að leigja aukanótt því þjónustuaðili getur ekki klárað þrif sé farið seinna út en kl. 10:00. Við mælumst til þess að félagsmenn hugi að þessu þegar húsið er bókað.

 

Þegar flogið er til Orlando International Airport (MCO) þá tekur það um 40 mínútur að keyra á orlofssvæðið (u.þ.b. 55 km). Einfaldast er að keyra Norður eftir vegi 1-A inn á veg 528 WEST til Vesturs frá flugvellinum. Af 528 er farið inn á I-4 til Vesturs (I-4 WEST) í átt að Tampa. Þægilegast er að far út af I-4 á Exit 58 og fylgja skilti sem vísar á Poinciana/Kissimmee og fara á Osceola Polk Line Rd. Því næst er beygt til hægri inn á Lake Wilson Rd. Næst kemur vinstri beygja inn á Ronald Reagan Pkwy. Þegar komið er að gatnamótunum á US-17 þá er beygt til hægri. Þá nálgast þú svæðið Providence og beygir til vinstri inn á svæðið. Þar kemur þú að lokuðu hliði þar sem vörður mun hleypa þér inn.

 

Auðveldast er að sjálfsögðu að nota GPS tæki eða Google Maps í farsíma(hugið vel að gagnamagni í farsíma) til þess að finna svæðið og þá er leitað eftir „Rosemont Woods At Providence“.