Veitingar í hléum viðburða bannaðar

Óheimilt er að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum og gestir skulu halda kyrru fyrir í sætum sínum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 18. mars. Hún gildir til 9. apríl.

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að góður árangur hafi náðst í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn hér á landi. Trúlega séu hvergi minni takmarkanir í Evrópu en á Íslandi.

Í reglugerðinni er kveðið um skráningu gesta á viðburðum. Á öllum viðburðum, svo sem í athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðlistar-, menningar og íþróttaviðburðum, ráðstefnum, fyrirlestrum og sambærilegum viðburðum, skulu gestir skráðir í númeruð sæti og teknar niður upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer hvers og eins.

Eins og áður segir verður óheimilt að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum. Skipuleggjendur viðburða skulu tryggja að ekki séu fleiri en 50 manns í hverju sóttvarnarhólfi og að ekki verði blöndun gesta á milli hólfa.

Um hlaðborð segir í nýrri reglugerð: Áfram verður heimilt að bjóða upp á hlaðborð en gestum gert skylt að sótthreinsa hendur áður en þeir sækja sér mat á hlaðborðið og einnig að því loknu, auk þess gæta að 2 metra nálægðarmörkum.

Að öðru leyti eru reglurnar óbreyttar frá því sem verið hefur. Afgreiðslutími skemmti- og veitingastaða verður áfram sá sami og verið hefur.