Dagana 14.-16. mars 2019 mun fara fram Íslandsmót iðngreina í Laugardalshöllinni. Af því tilefni mun MATVÍS leita af okkar hæfustu ungu einstaklingum til að verða fulltrúar Íslands í EuroSkills 2020 sem fara mun fram í Graz í Austurríki. 

Einu skilyrðin til þátttöku er að viðkomandi sé fæddur 1995 eða seinna, þá gildir einu hvort viðkomandi sé útlærður eða á samningi í sinni grein. Þeir sem sjá munu um að allt fari fram eftir kúnstarinnar reglum eru þau Natascha Fisher (framreiðsla), Viktor Örn Andrésson (matreiðsla), Jóhannes Númason (kjötiðnaður) og Daníel Kjartan Ármannsson (bakstur).

Skráning fer fram á matvis@matvis.is