Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir fulltrúum til að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2019-2021.

Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára í stjórn sjóðsins.

Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 28. febrúar 2019.

Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr.5.8) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.

Skjöl sem tilheyra kjöri fulltrúa launamanna í stjórn Birtu:

  • Auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 13. febrúar.
  • Eyðublað um framboð til setu í stjórn Birtu lífeyrissjóðs.
  • Starfsreglur valnefndar launamanna Birtu lífeyrissjóðs.