Desemberuppbót á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er 94.000 kr. og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þetta kemur fram á vef Samiðnar. Vika er nú í mánaðamót en þá fá flestir launþegar uppbótina greidda út.

 

Samiðn, sem er samband iðnfélaga, bendir á að starfsmenn sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu (akkorð) fái greidda desemberuppbót líkt og aðrir.

 

Fram kemur að sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning uppbótarinnar. Þá segir að iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fái fulla desemberuppbót og að fullt starf teljist vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

 

Nánar má sjá hér.

 

Sjá reiknivél fyrir útreikning desember- og orlofsuppbótar