Landssamband bakarameistara sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna þeirrar tillögu OECD að afnema löggildingu bakrara hér á landi. Tillögur um afnám löggildingar ýmissa starfsgreina koma fram í skýrslu OECD sem fjallar um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar. Ang­el Gur­ría, fram­kvæmda­stjóri Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­inn­ar (OECD), nefndi löggildingu bakara sér­stak­lega í máli sínu á kynningu á skýrslunni í dag.

 

Sjá einnig: OECD LEGGUR TIL AFNÁM LÖGGILDINGAR BAKARA

 

Í yfirlýsingunni gerir sambandið alvarlegar athugasemdir við ummæli Gurría þess efnis að bakaraiðn eigi ekki að njóta lögverndar. „Ekki er annað hægt en að furða sig á þessum starfsháttum stofnunarinnar sem með þessari tillögu virðist fara langt út fyrir verksvið sitt,“ segir í yfirlýsingunni.

 

Landssamband bakarameistara bendir á að í íslensku samfélagi sé almennt lögð rík áhersla á fagmennsku, gæði, öryggi, neytendavernd og menntun. Kapp sé einnig lagt á að auka fjölda iðnmenntaðra og mæta þannig þörf markaðarins fyrir slíkt vinnuafl. Lögverndun iðngreina sé í raun ákveðin undirstaða í þeirri vegferð að auka fjölda iðnmenntaðra og mæta þörfum markaðarins fyrir slíkt vinnuafl. Markmiðið sé að tryggja gæði sem og fagleg og örugg vinnubrögð í iðngreinum.

 

„Landssamband bakarameistara fagnar allri umræðu um mikilvægi löggildingar enda er tilgangur þess kerfis að ábyrgjast gæði og fagmennsku. Hins vegar er mikilvægt að sú umræða fari fram á réttum vettvangi en ekki kastað fram með óábyrgum hætti eins og Efnahags- og framfarastofnun OECD leyfir sér að gera.“